1. |
Í nótt
03:09
|
|||
í kvöld
kallar rökkrið svo hátt
að morgundagurinn
fölnar niður í
hvíta fönn
og í nótt mun ég vagga
í seinasta sinn
meðan öldugangurinn
hvíslar að mér hljóðlega
þú mátt ekki kæri minn
því í nótt mun ég vagga
í seinasta sinn
meðan öldugangurinn
hvíslar að mér hljóðlega
þú munt aldrei finna frið
en þó að hugarheimur minn
geti rúmað allt
sem ég vil
kýs ég frekar
að gefast upp
því í nótt
mun ég vagga í seinasta sinn
meðan öldugangurinn
hvíslar að mér hljóðlega
sofðu vinur
sofðu rótt
|
||||
2. |
Með köldum höndum
03:26
|
|||
svífa um
hugsanir þungar
er snjórinn
jörðina þekur
gref mína gröf
með köldum höndum
gref mína gröf
með kölnum höndum
en niðri í fjöru
brotna öldur
sem berjast
við klakann
gref mína gröf
með kölnum höndum
gref mína gröf
með köldum höndum
en uppi á himni
berst máninn
við svartnættið
gref mína gröf
með kölnum höndum
gref mína gröf
með köldum höndum
gref mína gröf
með kölnum höndum
|
||||
3. |
||||
hátt á himni skín ljós svo skært
að heimurinn virðist tær
en niðri við hafið bíður þín tóm svo djúpt
að allt mun fölna í sæ
og sólin sekkur í síðasta sinn
og sólin sekkur í síðasta sinn
á jaðri heimsins
berst veik von
en bálið nánast kafnað
undir fannfergi
og sólin sekkur í síðasta sinn
sólin sekkur í síðasta sinn
og sólin sekkur í síðasta sinn
|
||||
4. |
Algleymi
03:19
|
|||
hugurinn brennur af hræðslu og sorg
horfið ljósbrot og samastaður
hrunin og hrörleg skjaldborg
sem hylur sjónir [blindaður]
dreg andann dofinn blundandi
draumórar nánast kvaddir
hlusta á heimsins raddir
hvísla ofur hljótt
forðaðu þér fljótt
ræ hærra og hærra
og svo aldrei meir
|
||||
5. |
Rýkur úr
04:49
|
|||
rýkur úr rústum
upp á rauðbláan himinn
og bálið brennur
uns fjarar út
uppþot og óeirðir
dynja yfir
heimurinn reikar
og dettur svo út
rýkur úr rústum
upp á rauðbláan himinn
er morgunstjarnan
skín sem hæst
á svarthvítum hesti
ríður hann yfir
lyklinum er kastað
og kistlinum er læst
|
||||
6. |
Horfðu í eldinn
04:44
|
|||
í vafurlogaglóð
virðist myrkrið svo tært
að vitið sofnar
og sefur svo vært
horfðu í eldinn
og sjáðu hans mátt
hann stígur og eflist
en deyr þó kannski í sátt?
sjáðu hans lymsku
og slíttu þig frá
snöggur því kösturinn
lætur þig sjá
sem væri hann spegill
að sálnanna gjá
horfðu í eldinn
og sjáðu hans mátt
hann stígur og eflist
en deyr þó kannski í sátt?
|
||||
7. |
Draumadöf
04:09
|
|||
með freðna jörð undir fótum festist þú
með hugann fullan af rótum þornar þú
en eina óskin er að sofa rótt
því draumarnir hverfa skjótt
meðan sólin lækkar flugið dofnar þú
meðan myrkrið sortnar smækkar þú
en eina óskin er að sofa rótt
því draumarnir hverfa skjótt
|
||||
8. |
Horfinn
03:44
|
|||
við hvert brigðult fótatak
heyrast raddir
sem bergmála
í huga mér
undan þrúgandi hjartslætti
vakna neistar
sem blika um stund
í augum mér
horfinn
í eigin hugarheim
þar sem engin sér
hvað ég er
hver ég er
hvað ég er
innan veggja
dvelur sá
sem varpar skugga
á allt sem áður komið er
úti í lífsins ólgusjó
standa klettar
sem brjóta allt
sem nálægt fer
horfinn
í eigin hugarheim
þar sem engin sér
hver ég er
hvað ég er
hver ég er
|
||||
9. |
Djúp
03:30
|
|||
í hugartómi hrjúfra sig
bældar hugmyndir
sem aldrei fengu frið
í hyldýpum hugans
leynast grafir
sem hylja fræin
sem aldrei fengu grið
í hugardjúpi
blundar lítið barn
sem berst um í hljóði
eitt og einmana
|
||||
10. |
Straumhvörf
04:49
|
|||
streymir þú
stöðugur
svo tær og hýr
læðist þú Niður
fjallið
horfinn
áfram
frá mér
sem enginn sér
leiðirnar liggja
allar út frá þér
en hvað varð
um drenginn
sem kraup
þér við hlið
hlustaði á nið
teygaði
á þínum
straumum
veistu það?
|
Á geigsgötum Akureyri, Iceland
Á Geigsgötum is an experimental dark folk project, founded in Akureyri, Iceland. The music is cold and inspired by the short
days and melancholy, driven by uncertainty, doubt and misconceptions and the lyrics fluctuate between nihilistic tendencies and emotional meaning.
... more
Streaming and Download help
If you like Á geigsgötum, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp